miðvikudagur 2. maí 2012

Húsnæði óskast fyrir nema

Í byrjun september n.k. mun nýr hópur meistaranema í haf- og strandsvæðastjórnun hefja nám hjá okkur hér í Háskólasetri Vestfjarða og er nú leitað að hentugu húsnæði fyrir nýnemana, frá og með næsta hausti til u.þ.b. eins árs.

 

Háskólasetur sér um milligöngu, þ.e. kynningu á húsnæðinu ásamt tengingu milli eiganda og væntanlegs leigjanda. Leigusamningur er gerður milli leigjenda og húseigenda.

 

Leitað er að íbúðum með húsgögnum, baði, þvotta- og eldunaraðstöðu eða herbergjum með húsgögnum með aðgang að baði, þvotta- og eldunaraðstöðu.

 

Kostur ef húsnæðið er í göngufæri við Háskólasetrið.

 

Nánari upplýsingar veitir Pernilla Rein, verkefnastjóri í síma 450 3044 eða pernilla@uwestfjords.is.