Hertar aðgerðir vegna Covid19 - Hólfaskipting í Háskólasetri - Uppfært 05.10.2020
Aukning í fjölda smita undanfarna daga og vikur hefur leitt til þess að yfirvöld hafa sett strangari reglur til að koma í veg fyrir frekari dreifingu vírusins. Hámarksfjöldi nemenda í hóp miðast við 30 manns, þar sem 1 metra fjarlægðarmörk eru tryggð. Í Háskólasetrinu verða hópar aðgreindir. Þar sem ekki er hægt að aðgreina hópa, eða ekki mögulegt að halda eins meters fjarlægðarmörkum skal nota grímu.
Sjá reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.
Tímarammi: 05.10.2020-19.10.2020
Aðgreiningu hópa er ætlað að minnka mögulegt smit á milli hópa og auðvelda rakningu ef til kemur. Háskólasetrið er vinnustaður sem er deilt af nokkrum nemendahópum og stofnunum. Takmörkun á samgangi minnkar áhættu af smitum.
Aðgreining hópa verður samkvæmt eftirfarandi reglum:
Fjarnemar, breytileg fjöldatala, u.þ.b. 6-7 í húsinu að jafnaði. Fjarnemar skulu nota lesherbergi á jarðhæð.
Inngangur: Aðalinngangur Háskólaseturs. Útgangur, aðalinngangur Háskólaseturs.
Kaffistofa: Engin kaffistofa.
Salerni: Salerni á jarðhæð gengt Skógræktinni.
CMM47 – Arctic Ocean Governance, 6 nemendur skráðir, Stofa 3.
Inngangur: Aðalinngangur. Útgangur á suðausturhorni Háskólaseturs. S
Kaffistofa: Kaffistofa í suðausturhorni.
Salerni: Salerni fyrir hreyfihamlaða.
Tímasetningar kennslustunda samkvæmt upplýsingum frá fagstjóra og kennara.
CRD14 – Coastal Arctic Scenarios, 20 nemendur skráðir, Stofa 4.
Inngangur: Aðalinngangur. Útgangur um eldhús í port til að takmarka samgang. Síðasti aðili sem fer út þarf að loka hurðinni innanfrá og fara út um aðalinngang.
Kaffistofa: Aðalkaffistofa Háskólaseturs.
Salerni: Aðalsalerni Háskólaseturs.
Tímasetningar kennslustunda samkvæmt upplýsingum frá fagstjóra og kennara.
GCC, 8 nemendur skráðir, Stofa 1.
Inngangur: Á suðausturhorni Háskólaseturs. Útgangur um svalir og port.
Kaffistofa: Kaffistofa í suðausturhorni.
Salerni: Salerni Háskólaseturs fyrir hreyfihamlaða.
Hópurinn skiptis á að nota kaffistofuna til skiptis við SIT annarnám samkvæmt nánari upplýsingum frá fagstjóra og kennurum.
SIT – annarnám, 12 nemendur skráðir, Fræðslumiðstöð stofa 2.
Inngangur: Aðalinngangur. Útgangur um portið til að takmarka samgang. Síðasti aðili út skal loka innanfrá og ganga út um aðalinngang.
Kaffistofa: Kaffivagn við kennslustofu.
Salerni: Salerni á jarðhæð fyrir framan Skógræktina.
Hópurinn skiptis á að nota kaffistofuna til skiptis við SIT annarnám samkvæmt nánari upplýsingum frá fagstjóra og kennurum.
Annars árs nemendur CMM/CRD, árgangur 2019. Fjöldi óljós, u.þ.b. 5 á hverjum tíma. Skulu nota bókasafn.
Inngangur: Aðalinngangur Háskólaseturs. Útgangur aðalinngangur Háskólaseturs.
Kaffistofa: Engin kaffistofa.
Kennarar og starfsfólk. Þeim er heimilt að fara yfir sótthólfalínur ef nauðsyn krefur.
Rannsóknarmenn noti sínar skrifstofur sem fyrr.
Inngangur: Aðalinngangur. Útgangur, aðalinngangur Háskólaseturs.
Gestir eru ekki leyfðir í Háskólasetrinu frá tímabilinu 05.10.2020-19.10.2020, að undanskildum gestakennurum sem koma vegna námskeiða.
Aðgengi að prentara og ljósritunarvél:
Nemendur geta prentað út með aðstoð frá riturum. Ritarar koma prentuðu efni til viðkomandi eftir þörfum. Ljósritun skal gerð í samráði við ritara.
Aðgengi að starfsmönnum og kennurum:
Starfsmenn og kennarar skulu ekki taka á móti nemendum í skrifstofum sínum. Samskipti nemenda við kennara skal fara fram í kennslustofu eða í gegnum Internetið (tölvupóstur, Zoom, sími). Samskipti milli nemenda og starfsfólks skulu fara fram í gegnum tölvupóst, síma eða Zoom.
Grímunotkun
Í samræmi við gildandi viðmið skal nota grímur allstaðar þar sem eins meters samskiptafjarlægð verður ekki tryggð og þar sem hópar blandast.
Hópareglurnar hér að ofan tryggja að hópar blandast ekki, ekki einu sinni á göngum. Í kennslustofum er unnt að tryggja eins meters samskiptafjarlægð. Engu að síður er ráðlagt að hafa grímur til taks og notkunar í Háskólasetrinu og mun Háskólasetrið sjá nemendum fyrir grímum. Vinsamlegast gæti þess að nota grímurnar á réttan hátt samkvæmt leiðbeiningum.
Skráning í námskeið
Námskeið verða kennd samkvæmt áætlun. Á meðan Háskólasetrið getur fylgt settum reglum um staðkennslu verður kennslunni haldið áfram.
Lokað um helgar
Háskólasetrið verður lokað um helgar á tímabilinu frá 10. október til 18. október, til að takmarka samgang milli hópa.
Mælst er til þess að nemendur, kennarar og starfsfólk forðist aðstæður þar sem hætta er á smiti. Óþarfa ferðalög eru ekki ráðlögð á þessum tíma, einkum til Reykjavíkur. Hið sama gildir um einkasamkvæmi þar sem stórir hópar úr ólíkum áttum koma saman.
Við vonumst eftir skilningi allra hlutaðeigandi hvað þessar reglur varðar. Þær eru settar í framkvæmd til að mögulegt sé að halda úti kennslu og til að minnka áhrif ef smit kemur upp meðal nemenda, kennara eða starfsfólks.
Vinsamlegast munið eftir persónubundnum sóttvörnum, handþvotti, samskiptafjarlægð og notkun grímna þar sem það á við. Persónubundnar sóttvarnir hafa reynst best til að stemma stigu við sýkingum.