föstudagur 18. maí 2012

Heimsókn á Suðurfirðina

Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Háskólasetur Vestfjarða verða í Vesturbyggð og á Tálknafirði þriðjudaginn 22. maí nk.

Starfsmenn Háskólseturs og Fræðslumiðstöðvar verða á ferðinni yfir daginn og heimsækja ýmis fyrirtæki og stofnanir. Klukkan 18 verða þeir svo til skrafs og ráðagerða í Þekkingarsetrinu Skor. Allir sem áhuga hafa á frekara námi, hvort sem er formlegu námi eða styttri námskeiðum eru hvattir til að mæta og kynna sér hvað er í boði.

Smári Haraldsson, forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar mun kynna;
- Starfsemi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og þjónustu
- Nám fyrir fullorðna með stutta formlega skólagöngu

Kristín Ósk Jónasdóttir, kennslustjóri Háskólaseturs mun kynna;
- Möguleika á að ljúka stúdentsprófi eða frumgreinaprófi í heimabyggð
- Fjarnámsmöguleika á háskólastigi
- Þjónustu Háskólaseturs gagnvart fjarnemum

Allir velkomnir