fimmtudagur 8. október 2009

Háskólastarf á Ströndum

Helgina 10. - 11. október munu þrjátíu erlendir nemendur stunda háskólanám á Ströndum. Dvöl þeirra er hluti af námskeiði á vegum Þjóðfræðistofu og Háskóla Íslands um íslenska þjóðfræði.

Aðalleiðbeinandi er Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu, en fjöldi gestakennara tekur þátt í námskeiðinu þ.á.m. Magnús Rafnsson frá Strandagaldri, Katla Kjartansdóttir frá H.Í. og Hafdís Sturlaugsdóttir frá Náttúrustofu Vestfjarða. Þá mun Sigurður Atlason frá Strandagaldri taka á móti háskólanemunum á Galdrasýningunni á Ströndum. Auk þess að fræðast um þjóðfræði, sagnir og þjóðtrú á Íslandi munu nemarnir sækja heim Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og kynnast nytjum á Ströndum.

Nánari upplýsingar: www.icef.is