Skilmálar Innheimta
Skráningargjald eru innheimt fyrir hvert skólaár sérstaklega. Það miðast við staðgreiðslu og skal vera að fullu greitt þann 30.júní (gjalddagi) ár hvert fyrir næsta skólaár.
Réttur til náms
Nemandi sem ekki greiðir skráningargjald á réttum tíma getur vænst þess að hafa fyrirgert rétti sínum til að hefja nám eða stunda áframhaldandi nám við skólann. Nemandi telst ekki skráður í nám fyrr en hann hefur greitt skráningargjald.
Endurgreiðsla
Skráningargjald er óendurkræft. Við sérstakar kringumstæður getur nemandi þó sótt um endurgreiðslu skólagjalda, en það á aðeins við í algerum undantekningartilvikum svo sem vegna alvarlegra veikinda. Hvert mál er metið sérstaklega. Sæki nemandi um endurgreiðslu þarf hann að leggja inn skriflegt erindi til kennslustjóra þess efnis þar sem ástæður beiðnarinnar eru útskýrðar og viðeigandi vottorðum og gögnum skilað inn. Ef endurgreiðsla er samþykkt fær nemandi þó aldrei endurgreitt meira en sem nemur helmingi skráningargjalds.