
Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða 2020
FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA VEGNA COVID 19. NÝ DAGSETNING AUGLÝST SÍÐAR.
Málþing í Safnahúsinu/Gamla sjúkrahúsinu, Ísafirði
Laugardaginn 14. mars 2020, kl. 13:00‒16:45
Laugardaginn 14. mars fer fram málþing í Safnahúsinu/Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði um bókmennta- og menningarsögu. Dagskrá má nálgast hér að neðan ásamt upplýsingum um fyrirlesara. Þetta er annað málþingið um efnið, sjá upplýsingar um fyrra málþingið hér.
Þegar spáð er í íslenska bókmenntasögu má sjá hvernig mörg af lykilverkum íslenskra bókmennta eiga rætur sínar að rekja til Vestfjarða. Markmið málþingsins er að skapa samræðu um þetta dulmagnaða efni og kortleggja um leið þó ekki væri nema brot af þeim handritum og bókmenntaverkum sem rísa úr Djúpinu frá miðöldum til okkar tíma. Einnig er hugað að djúpstæðu sambandi skáldskapur og tónlistar á Vestfjörðum. Málþingin eru hluti af verkefninu Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða og takmark þeirra er að safna efni í kver um vestfirska bókmennta‒ og menningarsögu. Tilurð verkefnisins hvílir í Akurskóla íslenskudeildar Manitóbaháskóla á Vestfjörðum (2008-2015) og því samstarfi sem komið var á fót í því samhengi milli deildarinnar og Háskólaseturs Vestfjarða. Velunnari verkefnisins er Guðmundur Hálfdanarson, Forseti Hugvísindadeildar og Jóns Sigurðssonar prófessor við Háskóla Íslands, og verkefnisstjórar bókmenntafræðingarnir Birna Bjarnadóttir og Ingi Björn Guðnason.
Dagskrá:
13:00‒13:15 ― Opnun
Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða býður fólk velkomið.
Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs og Jóns Sigurðssonar prófessor við Háskóla Íslands ávarpar samkomuna.
13:15‒13:30 ― Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða, kynning
Birna Bjarnadóttir: Dómkirkjubragur.
13:30‒14:00 ― Frá Vestfjörðum til Vesturheims
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: „... almennt nefnd „skáldkona“. Sagt frá skáldkonunni Guðrúnu Þórðardóttur sem fæddist á Tindum í Geiradal árið 1817 og lést að Akra í Norður-Dakóta árið 1896.
14:00‒14:15 ― Kaffihlé
14:15‒15:15 ― Sálmar og kvæði úr Dýrafirði
Árni Heimir Ingólfsson: Tónlistin í Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum í Dýrafirði.
Johnny Lindholm: „... sem Guðs mynd í mér spillir“. Fáein orð um notkun myndmáls í skáldskap sr. Ólafs Jónssonar á Söndum.
15:15‒15:45 ― Meira af skáldskap og tónlist
Ingunn Ósk Sturludóttir: Sönglagið í Djúpinu.
15:45‒16:00 ― Kaffihlé
16:00‒16:30― Sýn rithöfunda
Eiríkur Örn Norðdahl: Skrifað út um gluggann – um og úr Brúnni yfir Tangagötuna.
16:30‒16:45 ― Lokaorð
Birna Bjarnadóttir og Ingi Björn Guðnason stýra umræðum.