Námsframboð
Í háskólum landsins er hægt að fara ýmsar leiðir í fjarnámi og er ýmislegt í boði. Háskólasetur Vestfjarða er í samstarfi við alla háskóla landsins sem bjóða upp á fjarnám og taka nemendur í flestum tilfellum öll lokapróf sín í náminu í Háskólasetrinu. Nemendur sækja einnig tíma sína í Háskólasetrinu, þ.e. þeir sem þurfa að sækja tíma í gegnum myndfundabúnað. Háskólasetur Vestfjarða stendur öllum háskólanemum á Vestfjörðum opið og er fólk hvatt til að nýta sér aðstöðuna sem boðið er upp á.