miðvikudagur 16. september 2009

Vísindaport: Íslendingar á víkingaöld

Líf og aðstæður fólksins í Íslendingasögunum 

William R. Short hlaut doktorsgráðu frá Massachusetts Institute of Technology árið 1980. Hann varði nær þrjátíu árum við vinnu í iðnaði, þar sem hann stundaði rannsóknir sem tengjast, hljóði, hljómburði og heyrn. Á þessum árum komst Dr. Short í kynni við Íslendingasögurnar og varð samstundis hugfanginn af þeim. Síðustu ár hefur hann starfað við Higgings Armory Museum þar sem hann hefur fengist við rannsóknir sem tengjast vopnum og vopnaburði á víkingaöld.

Þessar rannsóknir byggjast m.a. á fjölmörgum dæmum úr Íslendingasögunum, en niðurstöðurnar birti Dr. Short á síðasta ári í bókinni Viking Weapons and Combat Techniques. Á meðan á þessari vinnu stóð áttaði hann sig á að fjölmargir nútíma lesendur fórust á mis við skemmtanagildi sagnanna. Við fyrirlestrahald og sýningar, í fjölmörgum háskólum og söfnum, kom greinilega í ljós að fólk var áhugasamt og heillað af sögunum, en það átti erfitt með að setjast niður og lesa þær sér til skemmtunar þar sem samfélagið og menningin sem þar er lýst var ókunnugt. Bókinni Icelanders in the Viking Age, sem kemur út hjá McFarland & Company í Bandaríkjunum á næsta ári, er ætlað að bregðast við þessu.