miðvikudagur 19. apríl 2017

Viltu hýsa skiptinema í sumar?

Háskólasetur Vestfjarða leitar nú að fjölskyldum sem vilja opna heimili sín fyrir bandaríska háskólanema sem koma í vettvangsnám til Ísafjarðar tímabilið 18.júní - 5.júlí.

Góð reynsla er af móttöku slíkra nema á Ísafirði og nágrenni en frá árinu 2012 hefur Háskólasetrið haft milligöngu um heimagistingu fyrir hópa á vegum SIT skólans, School for International Training (SIT) í Vermont í Bandaríkjunum.  

Nemendahópurinn mun sitja námskeið um endurnýjanlegra orku og umhverfishagfræði sem nefnist Iceland: Renewable Energy, Technology, and Resource Economics. Námskeiðið stendur yfir í samtals sjö vikur og hefur verið í boði frá því 2007. Síðastliðið haust hleypti SIT Study Abroad nýrri vettvangsbraut af stokkunum í samvinnu við Háskólasetrið. Viðfangsefnið er lofslagsmál á Norðurslóðum og nefnist námsbrautin Iceland and Greenland: Climate Change and the Arctic. Gisting hjá fjölskyldum er einnig í boði fyrir þessa nemendur.

Markmiðið með heimagistingu er að gefa ungmennunum tækifæri til taka þátt í lífi fjölskyldu og kynnast þannig íslenskri menningu og tungu. Nemendurnir hafa í gegnum tíðina gist hjá fjölskyldum ýmist á Ísafirði, í Hnífsdal eða í Bolungarvík.

Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við Pernillu Rein, verkefnastjóra hjá Háskólasetrinu í síma 820-7579 eða pernilla@uw.is. Bendum einnig á Facebook hóp verkefnisins: https://www.facebook.com/groups/SITFjolskyldursumar2017/


Einar Geir Jónasson í Naustahvílft ásamt nokkrum skiptinemum.
Einar Geir Jónasson í Naustahvílft ásamt nokkrum skiptinemum.