fimmtudagur 18. ágúst 2016

Viltu eignast nýjan fjölskyldumeðlim í 3 vikur í haust?

Í næsta mánuði á Háskólasetrið von á hópi af bandarískum háskólanemum sem munu dvelja hér í nokkrar vikur í haust. Þessum ungmennum er boðin gisting í heimahúsum og erum við að leita að fjölskyldum sem eru til í að taka þátt. Tímabil heimagistingarinnar er 14. september  - 7. október.  

Markmiðið með að bjóða gistingu í heimahúsum er að leyfa þessum ungmennum að kynnast okkur með því að vera eins og hver annar í fjölskyldunni. Þeir fá þannig menninguna beint í æð og tækifæri til að æfa sig í íslensku. Heimagisting hefur verið í boði hér á svæðinu í tengslum við sumaráfanga skólans undanfarin fimm sumur og gefist mjög vel. Nemendurnir hafa gist hjá fjölskyldum ýmist á Ísafirði, í Hnífsdal eða í Bolungarvík.

Fyrirkomulagið er þannig að nemendur sækja tíma í Háskólasetrið virka daga en um helgar er yfirleitt frí. Sjá þarf gestinum fyrir morgun- og kvöldverð virka daga, en allar máltíðir um helgar. Hver gestgjafafjölskylda hýsir 1-2 nema, eftir aðstöðu og óskum. Gestgjafar fá greitt fyrir að taka þátt.

Hópurinn verður hér á vegum School for International Training (SIT) sem er háskóli í Vermont í Bandaríkjunum og rekur fjölbreyttar námsleiðir um allan heim. Háskólasetrið er samstarfsaðili SIT á Íslandi og hefur tekið á móti hópum í sumaráfanga á vegum skólans frá því 2007. Nú er verið að setja á laggirnar nýja námsleið og er viðfangsefnið loftslagsbreytingar á Norðurslóðum. Þetta er því fyrsti hópurinn sem sækir okkur heim og mjög ánægulegt að útvíkka samstarfið vit SIT með þessum hætti.  Námið fer fram hér á norðanverðum Vestfjörðum, í  Reykjavík og á Akureyri, en nemendur munu einnig dvelja í hálfan mánuð á Grænlandi. 

Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við Pernillu Rein verkefnastjóra, s. 820-7579, pernilla@uw.is Bendum einnig á Facebook hóp verkefnisins: https://www.facebook.com/groups/sit.fjolskyldur.h2016/


Fjölskylda Sólrúnar Geirsdóttur og Jónasar Guðmundssonar hýsti SIT nema sl sumar. Hér sjást sonur þeirra Einar Geir ásamt erlendu gestum fjölskyldunnar. (Mynd: Sólrún Geirsdóttir)
Fjölskylda Sólrúnar Geirsdóttur og Jónasar Guðmundssonar hýsti SIT nema sl sumar. Hér sjást sonur þeirra Einar Geir ásamt erlendu gestum fjölskyldunnar. (Mynd: Sólrún Geirsdóttir)