miðvikudagur 26. maí 2010

Sumarháskólinn á Hrafnseyri 2010

Hrafnseyri, Háskólasetur Vestfjarða og Fræðslumiðstöð Vestfjarða hafa ákveðið í sameiningu að bjóða upp á helgarnámskeið í strand- og menningarferðamennsku á Hrafnseyri, helgina 11.-13. júní.

Námskeiðið hefst föstudaginn 11. júní, kl. 18 -19 í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði þar sem farið verður yfir dagskrá námskeiðsins. Námskeiðið heldur svo áfram á Hrafnseyri laugardag 12. júní kl. 9-16, þar sem Valdimar J. Halldórsson staðarhaldari mun fjalla um menningarferðamennsku, en kl. 17 þann dag verður farið á bát til Bíldudals, þar sem Skrímslasafnið verður skoðað. Um kvöldið er svo grillað. Sunnudaginn 13. júní, kl. 9-16, mun Dr. Marc L. Miller frá Washington háskóla í BNA fjalla um strandferðamennsku. Kennt verður á íslensku og ensku.

Frekari upplýsingar og skráning í síma 845 5518 (Valdimar, Hrafnseyri).