fimmtudagur 16. janúar 2014

Samlegðaráhrif vind- og vantsorku

Í þessu fyrsta Vísindaporti ársins 2014, 17. janúar, mun Egill Skúlason kynna meistaranámsritgerð sína við Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið heitir Optimization and Profitability of Hydro Power with Wind Power.

Í verkefninu athugaði Einar hvort að jákvæð samlegðaráhrif væru af því að nýta samhliða vind- og vatnsorku. En þar var litið til þátta eins og að meiri vindur er á veturna og vatnsmagn meira á sumrin. Í rannsókninni var litið til staðsetningar vindmyllna á Þröskuldum, vindasömu svæði sem var í þægilegri nálægð við rafmagnslínur. Vindorkan var hugsuð sem orkuöflun samhliða fyrirhugaðri stækkun Mjólkávirkjunnar á Vestfjörðum, orka sem hægt væri að geyma sem stöðuorku í uppistöðulónum. Líkan var byggt til að líkja eftir og segja til um rekstur virkjananna.

Egill Skúlason lauk BSc gráðu frá Viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri árið 2012 og er nú að ljúka MS gráðu í Orkuvísindum frá Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík.

Vísindaportið hefst að venju klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs