miðvikudagur 28. nóvember 2012

Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar

Í Vísindaporti föstudagsins, mun nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar verða kynnt. Tillagan er hluti af stærra verkefni sem kallast Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða. Fjórðungssamband Vestfirðinga, Teiknistofan Eik og Háskólasetur Vestfjarða standa að verkefninu en formlegur undirbúningur þess hófst árið 2009. Gunnar Páll Eydal frá Teiknistofunni Eik og Aðalsteinn Óskarsson frá Fjórðungssambandinu munu kynna verkefnið.

Markmið verkefnisins er að skipuleggja strandsvæðin með svipuðum hætti og gert er á landi en á Íslandi nær skipulagsvald sveitarfélaga aðeins til lands, nánar tiltekið út að 115 m frá stórstraumsfjöruborði. Áætlunin er þannig yfirlýsing sveitarfélaganna um það hvernig þau vilja að strandsvæðin séu nýtt en er einnig samantekt á ýmsum forsendum fyrir ákvarðanatöku á strandsvæðinu. Nýtingaráætlunin á að vera verkfæri fyrir sveitarstjórnir, leyfisveitendur og hagsmunaaðila til þess að bæta ákvarðanatöku. Henni er ætlað að stuðla að sjálfbærri nýtingu og þróun á svæðinu og efla það með sameiginlegri stefnumótun, er byggi á styrkleikum svæðisins og þeim auðlindum sem þar er að finna.

Nánari upplýsingar um nýtingaráætlunina, m.a. tillögu að greinargerð og uppdráttum, er að finna á heimasíðu Fjórðungssambands Vestfirðinga: http://www.fjordungssamband.is/nytingaraaetlun/

Vísindaportið hefst að vanda klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs. Allir boðnir velkomnir.

Núverandi nýting í Arnarfirði skv. skráningu í verkefninu.
Núverandi nýting í Arnarfirði skv. skráningu í verkefninu.