Nýsköpunarverðlaun Vestfjarða 2009
Þótt Vísindaportið sé formlega komið í sumarfrí, bjóða Vaxtarsamningur Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða upp á heilmikinn sumarglaðning í Vísindaporti föstudaginn 5. júní á milli klukkan 12.00 og 13.00, í kaffisal Háskólaseturs. Þar verða kynntir verðlaunahafar í nýsköpunarkeppni sem Vaxtasamningurinn og Atvinnuþróunarfélagið héldu nýlega á Vestfjörðum. Verðlaunaafhendingin er opin öllum þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og atvinnuuppbyggingu svæðisins, boðið verður upp á léttar veitingar.
Þrettán nýsköpunarhugmyndir bárust í keppnina og voru þær afar fjölbreyttar. Keppnin er liður í því að auka og styðja við nýsköpun á svæðinu enda er nýsköpun ein af forsendum vaxtar. Hugmyndirnar sem bárust í keppnina eru eftirfarandi:
- Fiskrækt og seiðaeldi
- Vefsíðuvakinn - hugbúnaðargerð
- Artic Circle - vínframleiðsla úr bláberjum
- Gyða - rafvæddur farþegabátur
- Kerecis - lækningavörur úr fiskroði
- Fossadalur - fluguveiðihjól og nýr bremsubúnaður fyrir veiðihjól
- Fasanarækt
- Straumhjól - hverfill fyrir virkjun sjávarstrauma
- Lífvinnslan - Vinnsla á kítíni úr rækjuskel
- Fittings - fittings unnið úr stál rörum
- Sjúkralyfta - bílalyftubúnaður fyrir fatlaða
- Tankurinn - hljóðver
- Flakavinnsla - nýjar vinnslu og meðhöndlunaraðferðir fyrir fiskvinnslu