Notkun iPad í skólastarfi
Í Vísindaporti föstudagsins mun Svavar Þór Guðmundsson koma og kynna niðurstöður meistaranámsritgerðar sinnar, en síðastliðinn vetur stundaði hann nám við Háskólann í Manchester. Ritgerðin fjallar um þróun tölvunotkunar í íslenskum skólum, lítillega um ástandið í dag og möguleika þá sem tilkoma iPadsins hefur skapað í kennslu og námi, bæði tækni- og kennslufræðilega. Hafði hann þar til hliðsjónar reynslu starfsfólks Norðlingaskóla sem er eini hérlendi skólinn sem notað hefur iPad að miklu leyti í kennslu.
Svavar mun tala lítillega um núverandi ástand í tölvumálum íslenskra grunnskóla en þeim mun meira um „digital disconnect" eða muninn á tölvunotkun nemenda heima og í skólanum og hvernig kennarar eru að nota tölvur og tækni í skólum. Í framhaldi af því mun hann svo ræða um hvort iPad sé rétta verkfærið til að „uppfæra" tölvunotkun nemenda í skólum/námi og fara í gegnum kosti og galla þessarar tilteknu tækni í skólastarfi.
Svavar Þór Guðmundsson starfar sem kerfisstjóri á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Hann lauk BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri árið 2000 og Masters gráðu frá Háskólanum í Manchester árið 2012.
Vísindaportið er öllum opið og hefst klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs.