Næsta Vísindaport 12. des en annars komið í jólafrí
Þótt Vísindaportið sé að mestu leyti komið í jólafrí þar sem próftímabilið nemenda stendur yfir, verður engu að síður eitt Vísindaport haldið í desember. Það fer fram þann 12. desember í tilefni þess að þann 10. desember næstkomandi verða liðin sextíu ár frá því að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt.
Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni, Fjölmenningarsetur og Rauði krossinn á Vestfjörðum hafa í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða ákveðið að minnast þessara tímamóta undir yfirskriftinni „Viðhorf og virðing" og er þar vísað til 1. greinar yfirlýsingarinnar þar sem segir að hver maður sé jafnborinn til virðingar og réttinda er eigi verði af honum tekin.
Neikvæð viðhorf og fordómar leiða af sér bæði formlega og óformlega mismunun. Gestur Vísindaports þann 12. desember næstkomandi verður fulltrúi hóps sem orðið hefur fyrir skyndilegri viðhorfsbreytingu og sætt miklu aðkasti í starfi undanfarnar vikur. Það er Sigríður Jónsdóttir útibússtjóri Glitnis í Mosfellsbæ sem ræðir gjörbreyttar starfsaðstæður bankafólks vegna viðhorfsbreytingar viðskiptavina.
Vísindaportið þann 12. desember verður nánar auglýst síðar.