miðvikudagur 20. maí 2009

Listaháskóli unga fólksins

Dagana 8.-12. júní næstkomandi gefst ungu fólki á Vestfjörðum kostur á að sækja Listaháskóla unga fólksins á vegum Háskólaseturs Vestfjarða og Menningarráðs Vestfjarða í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.


Undanfarin ár hefur Háskólasetrið boðið upp á Háskóla unga fólksins á Ísafirði en með Listaháskóla unga fólksins verður sú nýbreytni tekin upp að skólinn fer fram á þremur stöðum á Vestfjörðum í sömu vikunni, þ.e. Ísafirði, Hólmavík og á Patreksfirði. Fjölbreytt námskeið verða í boði á ólíkum listsviðum, en sérstök áhersla lögð á nám í skapandi listgreinum sem alla jafna standa ekki til boða. Skólinn er ætlaður ungu fólki sem fætt er á árunum 1993 - 1997.


Allar nánari upplýsingar um Listaháskóla unga fólksins verða aðgengilegar hér á vef Háskólasetursinnan skamms. Þar sem námskeiðslýsingar, kennarar og nánari tímasetningar verða kynntar. Jafnframt verður kynningarefni dreift í öll hús á Vestfjörðum.