miðvikudagur 20. mars 2013

Kennari í haf- og strandsvæðastjórnun verðlaunaður

Á setningarhátíð Grænna daga sem nú standa yfir í Háskóla Íslands voru Guðna Elíssyni, prófessor við Hugvísindadeild skólans og kennara við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun, veitt Umhverfisverðlaun Grænna daga. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt einstaklingi, hópi eða deild innan HÍ, sem hefur með einhverjum hætti stuðlað að aukinni umhverfisvitund innan skólans og í íslensku samfélagi.

Í sumar mun Guðni Elísson kenna námskeið um birtingarmyndir loftslagsbreytinga í ýmsum miðlum við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun hjá Háskólasetri Vestfjarða.

Í fréttatilkynningu Gaia, félags meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, sem skipuleggur Græna daga, segir að Guðni hafi á undanförnum árum skrifað mikið um umhverfismál, fjallað um loftslagsbreytingar jarðar og hvernig stjórnmálaumræða hér á landi vanrækir og hunsar þær breytingar sem eru yfirvofandi, ekki bara í lífríki náttúrunnar heldur einnig í samfélagi okkar mannanna og á sviði alþjóðamála. Guðni hefur einnig bent á það hvernig stjórnmálaöfl hafa ítrekað gert lítið úr niðurstöðum vísindalegra rannsókna á sviði umhverfismála og ýtt til hliðar varnaðarorðum fræðimanna um umhverfisáhrif framkvæmda og gjörða mannfólksins.

Í niðurstöðu dómnefndar verðlaunanna segir að skrif Guðna Elíssonar séu mikilvæg í baráttunni fyrir bættri umhverfisvitund og þeim markmiðum sem þjóðir setja sér til að nálgast sjálfbæra þróun og tryggja jafnan rétt komandi kynslóða. Loftlagsbreytingar eru breytingar sem munu hafa víðtæk áhrif bæði hér á landi sem og annars staðar í heiminum og mikilvægt að stjórnmálaflokkar, hvar sem þeir eru staðsettir í hinu pólitíska litrófi, viðurkenni alvarleika þeirra áhrifa sem loftlagsbreytingar valda og bregðast við af alvöru, því ekkert sé áunnið ef fyrirheit um viðbrögð eru einungis orðin tóm. Framlag Guðna til umhverfisvitundar er því að mati dómnefndar nauðsynlegur hlekkur í fræðslu til almennings um umhverfismál og ákveðið aðhald við þau stjórnvöld sem fara með ákvörðunarvald á viðbrögðum í umhverfismálum, málum sem varða okkur öll.

Starfsmenn Háskólaseturs Vestfjarða óskar Guðna til hamingju með verðlaunin og hlakkar til að fá hann til starfa í sumar.