föstudagur 21. desember 2012

Jólakveðja og opnunartímar

Háskólasetrið óskar öllum nemendum, kennurum, vinum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Móttaka Háskólasetursins verður lokuð á milli jóla og nýárs, en lesaðstaða verður aðgengileg fyrir þá nemendur sem hafa lyklakort og þurfa á vinnuaðstöðu að halda þessa daga.

Síðasta próf haustannarinnar fór fram miðvikudaginn 19. desem ber og má segja að þar með hafi önninni formlega lokið. Flestir meistaranemar eru farnir til sinna heimalanda yfir hátíðirnar en kennsla í haf- og strandsvæðastjórnun hefst á ný þann 9. janúar með námskeiði um umhverfisvottanir. Þetta námskeið er reyndar kennt sem lesnámskeið og því má telja líklegt að flestir nemendur drýgi tímann í sínum heimalöndum og komi ekki aftur á Ísafjörð fyrr en um miðjan janúar.

Bestu jóla og nýaárskveðjur,
Starfsfólk Háskólaseturs.

Þessi fallega mynd eftir Ágúst Atlason, af gömlu sæluhúsi á Steingrímsfjarðarheiði, prýðir jóla- og áramótakveðju Háskólasetursins í ár.
Þessi fallega mynd eftir Ágúst Atlason, af gömlu sæluhúsi á Steingrímsfjarðarheiði, prýðir jóla- og áramótakveðju Háskólasetursins í ár.