fimmtudagur 28. febrúar 2013

Hönnun og handverk í Vísindaporti

Á föstudaginn munu þátttakendur í tilraunaverkefninu, Smiðja í Hönnun og handverki mæta í Vísindaport og kynna verkefnið. Þau munu kynna bæði afraksturinn og fjögurra vikna vinnuferli smiðjunnar sem lýkur með kynningunni á föstudaginn.

Höfuðþema smiðjunnar var VESTFIRSK SKATA - nýsköpun í gerð söluvarnings fyrir ferðamenn á Vestfjörðum. Kennt var í tveimur tveggja vikna lotum sem hver um sig var 60 kennslustundir. Í fyrri lotunni fengu nemendur innsýn í aðferðafræði hönnuða og handverksfólks auk þess sem þeir lærðu að skilgreina ýmis hugtök og nýta sér vinnudagbók/skissubók til að safna upplýsingum og þróa hugmyndir. Í seinni lotunni nýttu nemendur sér það sem þeir lærðu í fyrri lotunni til að hanna og búa til prufueintök til framleiðslu.

Fjölmargir sérfræðingar voru kallaðir til, ýmist til að halda stuttar kynningar og fyrirlestra eða til að kenna ákveðið handverk, aðferðafræði og/eða meðferð efnis. Einnig var fjallað um hinar ýmsu aðferðir við markaðssetningu, gæðaeftirlit og vöruþróun. Nemendurnir sem eru fjórtán talsins fóru saman í gengum ferli þar sem þeir skoðuðu og greindu helstu sérkenni fjórðungsins, kortlögðu mögulega sölustaði, rannsökuðu viðfangsefnið - skötuna - frá öllum hliðum, kynntu sér stöðu og þróun ferðaþjónustunnar á svæðinu og sköpuðu sínar útfærslur á söluvarningi sem fallið getur að þemanu sem unnið var með.

Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt, skipulagði verkefnið og hafði umsjón með smiðjunni sem var haldin á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Vísindaport hefst klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs og er öllum opið.

Vestfirsk skata var þema Smiðju í hönnun og handverki hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Vestfirsk skata var þema Smiðju í hönnun og handverki hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.