fimmtudagur 9. mars 2023

Heimsókn á Þingeyri

Nemendur í námskeiðinu Sjálfbært fiskeldi fengu heldur betur gott veður til að fara í heimsókn á Þingeyri á miðvikudag. Þar fóru kennararnir Peter Krost og Pierre-Olivier Fontaine með nemendur í heimsókn til Arctic Fish þar sem þeir fræddust um starfsemina og skoðuðu aðstöðu fyrirtækisins í Blábankanum, en síðan var haldið í bátsferð til að skoða sjókvíarnar í Dýrafirði. 

Fjörðurinn skartaði sínum fegursta vetrarbúningi og fékk hópurinn því frábæra upplifun samhliða fræðslunni. Myndirnar í albúminu segja allt sem segja þarf. 


Hópurinn á Þingeyri
Hópurinn á Þingeyri
1 af 14