mánudagur 2. mars 2009

Háskóladagurinn á Ísafirði

Háskólakynning verður í Menntaskólanum á Ísafirði, þriðjudaginn 3.mars kl. 11-14.
Þar verða allir háskólar landsins með kynningu á námsframboði sínu.  Þeir sem vilja kynna sér háskólanám á Íslandi eru hvattir til að mæta og hitta fulltrúa skólanna og kynna sér það sem er í boði.

Athygli skal vakin á því að Háskólasetrið hyggst standa fyrir sérstakri kynningu á fjarnámsframboði háskólanna í vor og verður sú kynning nánar auglýst þegar nær dregur.