Hafið, fjaran og fólkið
Dagskrá:
13:30-14:00 Auður við íslenska strönd. Kynning á Íslenska vitafélaginu - félagi um íslenska strandmenningu og verkefninu Fishernet: Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins og verkefnastjóri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
14:00-14:30 Strand- og neðansjávarminjar við Vestfirði: Ragnar Edvardsson, Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum
14:30-15:00 Ævintýralandið - ströndin: Rúnar Óli Karlsson, Borea Adventures
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-16:00 Fólk, framsal, fiskveiðiréttindi og fjármálaafurðir: Eru tilraunir með fiskveiðistjórnun í anda frjálshyggjunnar óafturkræfar? Dr. Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
16:00-16:30 Sóknin í norður - áhætta, öryggi og aðlögun sjávarbyggða vegna veðurfarsbreytinga og aukinnar skipaumferðar: Embla Eir Oddsdóttir, settur framkvæmdastjóri Rannsóknaþings norðursins og verkefnastjóri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
Fundarstjóri: Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri.
Að loknum fundi er fundargestum boðið í klukkustundar siglingu með eikarbátnum Húna II sem er gerður út frá Akureyri af Hollvinafélagi Húna. Báturinn verður á Ísafirði frá 16. til 20. maí 2012.