mánudagur 8. júní 2020

Forstöðumaður flytur skrifstofuna á Patreksfjörð

Eins og ástandið í COVID-19 sýndi og sannaði er fjarvinna af ýmsu tagi vel möguleg. Ef hægt er að vinna heima svo vikum skiptir, er þá ekki einnig hægt að vinna frá Patreksfirði? Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða ákvað að flytja skrifstofuna sína á Patreksfjörð í eina viku og verður hún staðsett í Ólafshúsi. Það verður án efa mjög gagnlegt fyrir Peter að kynnast starfsfólkinu og starfsumhverfinu þar og taka á móti gestum.

Tengiliður háskóla- og rannsóknarsamfélagsins við Vestfirði

Háskólasetrið er iðulega fyrsti snertiflötur og tengiliður rannsóknarfólks, nemenda og kennara af öðrum svæðum sem vilja starfa á Vestfjörðum í lengri eða skemmri tíma. Það er því mikilvægt að forstöðumaður Háskólaseturs geti kynnt tækifæri á öllum Vestfjörðum og er þessi dvöl m.a. hugsuð í þeim tilgangi. Starfsmenn Vestfjarðastofu, sveitarfélaga og stofnaðilar Háskólaseturs hafa í gegnum tíðina verið tengiliðir en best er að hafa reglulega viðveru á staðnum í eigin nafni eins og nú er gert.

Námskeið í sjávareldi í breyttri mynd

Undanfarin ár hefur Háskólasetrið staðið fyrir námskeiðum annað hvert ár í nýsköpun í sjávareldi á Tálknafirði í samstarfi við fyrirtæki á svæðinu. Þessum námskeiðum er ætlað að gefa nemendum og kennurum tækifæri til að kynnast sunnanverðum Vestfjörðum í nokkra daga í senn. Vegna COVID-19 neyddist Háskólasetrið hinsvegar til að færa þetta námskeið alfarið í netkennslu og sátu því allir heima, bæði nemendur og kennarar. Þar sem þetta námskeið féll niður að þessu sinni í venjulegri mynd þótti enn brýnna að finna aðrar leiðir til að halda tengslunum og styrkja þau á sunnanverðum Vestfjörðum.

Aðild að Háskólasetrinu

Á aðalfundi Háskólaseturs árið 2018 var opnað fyrir þann möguleika að gefa nýjum fyrirtækjum og stofnunum tækifæri á að gerast aðilar að Háskólasetri Vestfjarða og breikka þannig hópinn sem stóð að stofnun setursins fyrir fimmtán árum. Forstöðumaður Háskólaseturs mun nýta tækifærið í þessari ferð og kynna þennan möguleika fyrir fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu.

Hafði endilega samband!

Þeir sem vilja hitta Peter Weiss, forstöðumann Háskólaseturs, á sunnanverðum Vestfjörðum, mega gjarnan senda netpóst á weiss@uw.is, eða hringja í 869 3045.


Peter Weiss, forstöðumauðr Háskólaseturs, er búinn að koma sér vel fyrir í Ólafshúsi á Patreksfirði.
Peter Weiss, forstöðumauðr Háskólaseturs, er búinn að koma sér vel fyrir í Ólafshúsi á Patreksfirði.
1 af 2