miðvikudagur 11. mars 2009

Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag - Sjálfbærni á tímamótum

Málþing sem haldið er á vegum Félags umhverfisfræðinga, í Háskólanum á Akureyri um ferðaþjónustu, náttúru og samfélag verður sýnt í fjarfundabúnaði í stofu 2 í Háskólasetri Vestfjarða, fimmtudaginn 12. mars 2009, kl. 13:00-17:00. Allir velkomnir.

 

Búist er við auknum fjölda innlendra og erlendra ferðamanna á Íslandi á komandi misserum. Tryggja þarf að fjölgun ferðamanna hafi ekki í för neikvæð áhrif á náttúru Íslands og einstök byggðarlög. Þekking á þolmörkum náttúru og samfélags og hvernig þróa má ferðaþjónustu í átt að sjálfbærni eru lykilatriði í þessu sambandi. Málþingið Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag er númer tvö í röð málþinga sem Félag umhverfisfræðinga á Íslandi stendur fyrir undir yfirskriftinni Sjálfbærni á tímabótum. Sjónum verður beint að tilurð, mótun og sérstöðu íslenskrar ferðaþjónustu, vexti hennar, stöðu og þolmörkum og rætt um tengsl og upplifun fólks af náttúrunni. Þá verður fjallað um vöruþróun og stefnumótun á grunni sjálfbærni og rætt sérstaklega um sjálfbæra ferðaþjónustu á Norðurlandi.

 

Dagskrá málþings

 

Setning
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi

 

Ferðaþjónusta á tímamótum? Tilurð ferðaþjónustu á Íslandi og sjálfbærni
Gunnar Þór Jóhannesson, nýdoktor, Mannfræðistofnun, Háskóla Íslands

 

Ferðaþjónustan í dag og líkleg þróun
Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu

 

Þolmörk náttúru og samfélags í ferðaþjónustu
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræðum, Háskóla Íslands

 

Upplifun og tengsl fólks við náttúruna
Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ og stundakennari við Hólaskóla

 

KAFFIHLÉ

 

Vöruþróun í ferðaþjónustu á grunni sjálfbærni - mikilvægi samræmdrar svæðisbundinnar stefnumótunar
Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála

 

Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi
Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi

 

UMRÆÐUR

 

Fundarstjóri: Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar