fimmtudagur 17. október 2013

Bónus fyrir byggð í Vísindaporti

Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs, mun varpa fram hugmyndum um jákvæða mismunun háskólastarfs á svokallaðri landsbyggð í Vísindaporti næstkomandi föstudag, 18.10.2013. Landsbyggðin er ekki einsleit og hefur mismikil þörf á aðstoð. Háskólastarf er að miklu leyti fjárjmagnað af hinu opinbera og færir því byggðarlagi, sem það er staðsett í, töluverðar fjárhæðir, ef vel er að því staðið. Háskólastarf nýtist landsbyggðinni þó í mismiklum mæli. Ef svo skyldi vera að stofnun ýmissa setra hafi verið vegna byggðaþróunarsjónarmiða, ætti að greina vel, hvaða starfsemi gagnist hvaða landsbyggð sem mest, sem og ríkinu í heild, mæla árangur og launa setrunum árangurinn: Bónus fyrir byggð.


Vísindaportið fer fram í kaffisal Háskólaseturs, það er öllum opið og hefst klukkan 12:10.