Alþjóðleg GIS ráðstefna á Ísafirði
Háskólasetur Vestfjarða vinnur að undirbúningi alþjóðlegu ráðstefnunnar CoastGIS 2018 sem haldin verður á Ísafirði dagana 27.- 29. september.
Háskólasetrið er gestgjafi ráðstefnunnar í ár en þetta er í þrettánda sinn sem hún er haldin. Markmið ráðstefnunnar er að miðla þekkingu, hugmyndum og reynslu af notkun gagna og upplýsingatækni til að öðlast betri þekkingu á stjórnun strandsvæða og auðlindum þeirra.
Yfir 80 ráðstefnugestir allsstaðar að úr heiminum, og frá Íslandi, hafa boðað komu sína. Flestir eru úr heimi vísinda og fræða, stjórnsýslunni og atvinnulífinu. Ráðstefnan fer fram í Edinborgarhúsinu og í Háskólasetrinu og stendur í tvo daga. Um það bil 40 manns munu kynna rannsóknir sínar.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.coastgis2018.is eða hafa samband við verkefnastjóra ráðstefnunnar Astrid Fehling (astrid@uw.is / 4503043).
Það er ennþá hægt að skrá sig á vefsiðunni – skráningargjöld til að taka þátt í allri dagskrá er 22.000 kr.
Áhugasamir heimamenn geta einnig sótt einstaka viðburði ráðstefnunnar fyrir aðeins 1000 kr. (per dag; hádegismatur og ráðstefnugögn ekki innifalin). Tekið er við þessum greiðslum á staðnum.