Alþingiskosningar 2013 og komandi kosningavetur
Í samstarfi við prófessorsstöðu tengdri nafni Jóns Sigurðssonar munu fræðimenn frá Háskóla Íslands koma reglulega í Vísindaportið í vetur. Fyrstur til að ríða á vaðið er Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, en hann mun nú á föstudaginn, 28. september, fjalla um stöðu og horfur í íslenskum stjórnmálum á kosningavetri í ljósi rannsókna á íslenskum kjósendum síðustu 30 ár.
Ólafur hefur frá árinu 1983 staðið fyrir Íslensku kosningarannsókninni, en það er viðamikil rannsókn þar sem lagðar eru fyrir spurningar um kosninga- og stjórnmálahegðun íslenskra kjósenda. Meðal rannsóknarefna eru til dæmis kosningahegðun, afstaða kjósenda til stjórnmálaflokka, afstaða til lýðræðis, hvað kjósendur telja vera mikilvægustu verkefnin á vettvangi stjórnmála, þátttöku þeirra í prókjörum og margvísleg önnur málefni á vettvangi stjórnmála.
Ólafur Þ. Harðarson er prófessor í stjórnmálafræði og forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Hann lauk BA-prófi frá Háskóla Íslands 1977, MSc-prófi í stjórnmálafræði frá London School of Econonimcs and Political Science 1979 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1994.
Vísindaport er öllum opið og hefst klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs. Erindið verður á íslensku.