fimmtudagur 16. apríl 2015

Allir velkomnir á ráðstefnu

Á morgun, föstudaginn 17. apríl, hefst níunda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið í Háskólasetri Vestfjarða og stendur hún fram á laugardag. Að þessu sinni fer ráðstefnan fram undir yfirskriftinni „Hvað búa eiginlega margar þjóðir íþessu litla landi?“. Fjöldi áhugaverðra málstofa fara fram á ráðstefnunni og eru þær opnar almenningi. Við hvetjum fólk því til að kynna sér efni málstofanna og koma við í Háskólasetrinu á morgun og á laugardag. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til að sækja málstofur en ef fólk vill taka þátt í sameiginlegum hádegisverði þarf að skrá sig og greiða þátttökugjald, 3000 kr. fyrir einn dag og 6000 kr. fyrir báða dagana.

Allar nánari upplýsingar um skráningu og fleira eru aðgengilegar á vefsíðu ráðstefnunnar.

 


Ljósmynd: Gunnsteinn Jónsson.
Ljósmynd: Gunnsteinn Jónsson.